Skvísan

sunnudagur, maí 28, 2006

Sveitasæla eða kuldaboli, brrr

Jæja, ég er flutt upp í sveit en geri lítið af því að elta geitur. Ég og minn heitt elskaði unum vel í sveitasælunni,,, mætti reyndar halda að það væri vetur ennþá en við erum svo heppin hérna á Íslandi að vita aldrei við hvernig veðri á að búast, bara allt í einu kemur snjóstormur og svo allt í einu sólskin, bara hægt að hafa gaman af því, hehe. Mikil vinna framundan í sumar, svo það verður reynt að nýta helgarnar í eitthvað vel valið hnossgæti og jafnvel eilítil læti ;)
Bloggleysið stafar því ekki af leti heldur vegna skorts á tengingu við veraldarvefinn. Svoddann sambandsleysi í sveitinni en það gerir manni líka gott, hehe og bara notalegt að finna smábæjarstemminguna á nýjan leik.

Festi kaup á miðum á tónleika með DAVID GRAY þann 1. júlí og vá hvað ég hlakka til, :) Þeir koma í staðinn fyrir tónleikana með Madonnu í Horsens í ágúst ;) híhí.

Ástarkveðjur og ég hlakka alveg ógurlega til að hitta hana Silju mína sem er að koma heim frá Sverige, jätte bra.

Skvísan

sunnudagur, maí 07, 2006

Yndislegu próf

Ég er komin á dagdraumaflug,
læt mig dreyma um heima og geima
en þó mest Danaveldi.

Tvö próf búin og tvö eftir... you go girl, jejejeje um að gera að peppa sjálfan sig upp af fullum krafti. Það er gaman í prófum, þegar maður kann námsefnið og er búinn að læra ótrúlega vel. Vildi að það væri alltaf tilfellið hjá mér ;)
Það styttist ískyggilega mikið í að ég flytist ásamt ástmanni mínum upp í sveit. Þar ætlum við að una vel í sumar við bústörf og hreinsun á mjaltavélum. Jæja kannski ekki alveg en svona næsta við. Ég hlakka ógurlega til sveitasumarsins mikla og ég ætla að njóta þess að vera sveitó út í gegn. Ekki það að ég sé það ekki yfirleitt, en maður getur alltaf á sig blómum bætt :)

Kveðja með fullt af ást,
skvísan

mánudagur, maí 01, 2006

Prófatörn í algleyming

Lærdómurinn er kominn á fullt og prófin bíða, vá hvað það er gaman ;) vildi að ég hefði ögn meiri tíma til undirbúnings....
Þrátt fyrir stífan lærdóm fór ég á æðislega tónleika á laugardagskvöldið með Garðari Thór Cortes og Katherine Jenkins. Vá, það var svo fallegt, verst að ástin mín var ekki með í för... Mér var því skipað í sæti á milli tveggja eldri kvenna sem höfðu bónda sinn við hlið sér. Ég sat þarna með tárin í augunum og hugsaði með mér, vá hvað lífið er fallegt.
Já svona er þetta, mig langar bara að gróðursetja plöntur og týna blóm í vasa, nú eða í poka ef magnið er mikið. Mér gengur svona vel að læra, farin að hugsa um trjáplöntur- best að fara að koma sér að lærdómnum.

Gleðilegan maí
skvísan